Leikskóladeild Hrafnagilsskóla er staðsett í Eyjafjarðarsveit sem er um 1000 manna sveitarfélag. Í sveitarfélaginu eru bændabýli og þéttbýliskjarnar í bland, en Eyjafjarðarsveit er þó fyrst og fremst bændasamfélag og mótast menning samfélagsins af því. Leikskólinn er samrekinn með grunnskólanum undir stjórn eins skólastjóra. Eyjafjarðarsveit er með samning við Akureyrarbæ um sérfræðiþjónustu og hafa stjórnendur leikskólans aðgang að þeirri þjónustu sem Fjölskyldudeild Akureyrar býður upp á
Haustið 1987 tók til starfa dagheimili sem rekið var af Hrafnagilshreppi í eitt skólaár síðan bættist Öngulsstaðahreppur við sem rekstraraðili. Til að byrja með var dagheimilið starfrækt í 9 mánuði, frá septemberbyrjun til maíloka. Fyrsta veturinn var dagheimilið með aðsetur í íbúð í Hrafnagilsskóla, síðan var dagheimilið tvo vetur staðsett að Botni, sem er sumardvalarstaður fyrir fatlaða einstaklinga. Haustið 1990 fluttist starfsemin aftur í íbúðina í Hrafnagilsskóla. Þegar Hrafnagils-, Öngulsstaða- og Saurbæjarhreppur sameinuðust árið 2001 í eitt sveitarfélag, Eyjafjarðarsveit, hlaut dagheimilið nafnið Leikskóli Eyjafjarðarsveitar, síðar leikskólinn Krummakot.
Frá árinu 1992 hefur Krummakot verið rekið sem heilsárs leikskóli, en lokað hefur verið í fjórar til fimm vikur yfir sumartímann. 15. september er afmælisdagur Krummakots, þann dag 1998 var starfsemin flutt í núverandi húsnæði sem hafði verið nýtt fyrir 1.- 4. bekk grunnskólans áður.
Í upphafi voru 15 börn í Krummakoti en þeim fjölgaði mjög fljótlega í 18 og síðan í 27 börn í mismunandi vistunarrýmum. Í nýja Krummakoti fjölgaði börnunum strax í 40 börn, í 27 heilsdags vistunarrýmum og síðar í 43 börn í 27 heilsdags vistunarrýmum. Yfir daginn komu því í leikskólann 43 börn á mismunandi tímum. Á vorönn 2011 eru 52 börn á leikskólanum.
Skólaárin 1989-2000 var húsnæðið samnýtt með 1. og 2. bekk grunnskólans og skólaárið 2000-2001 með 2. og 3. bekk grunnskólans. Sumarið 2001 var lokið við að byggja við grunnskólann og leikskólinn fékk allt húsnæðið til afnota. Í desember 2006 bættist enn við húsnæði Krummakots og nú eru vistunarrými leikskólans fyrir 72 börn. Árið 2008 ákvað sveitarstjórn að samreka leik- og grunnskóla og eftir það breyttist nafn skólans úr Krummakoti í leikskóladeild Hrafnagilsskóla.
Leikskólinn er aldursskiptur þriggja deilda leikskóli. Reynt er að koma sem best til móts við þarfir foreldra með sveigjanlegum vistunartímum og viðvera barna er breytileg. Leikskólinn opnar kl. 7:30 á morgnana og lokar kl. 17:00 síðdegis. Dvalartími barna er frá fimm til níu klukkustundir á dag, fjölmennasti hópurinn er hins vegar milli kl. 8 og 16 á daginn. Foreldrar geta síðan keypt auka 30 mínútur ef á þarf að halda.
Í leikskólanum er matsalur fyrir tvær deildir en borða inni í sinni heimastofu. Maturinn er fenginn frá mötuneyti Hrafnagilsskóla.

